Grænhöfði ehf
Kajak

Fyrir innan Brú, milli ytri og innri Veðrará í Önundarfirði, er mjög gott að vera með stóra hópa, allt að 40 manns. Tilvalið er fyrir fyrirtæki að bjóða starfsfólki og börnum að njóta náttúrunnar í öruggum höndum reyndra Grænhöfðamanna. Svæðið er grunnt, hvergi dýpra en rúmur metri á fullu flóði. Hægt er að dóla í hringi og njóta náttúrunnar, þá er hægt að grilla, fara í leiki og njóta fuglasöngsins í landi.


 

Tveggja til þriggja tíma ferðir með leiðsögumanni

Vinsælustu ferðirnar eru 2-3 tíma sigling um fjörðinn með reyndum leiðsögumanni. Ýmist er lagt upp frá smábátahöfninni á Flateyri eða frá Veðrará og fer það gjarnan eftir straumi, veðri eða óskum fólks hvað leið er valin. Ekki er nauðsynlegt að enda ferð á sama stað og lagt er upp frá.

 

Fjögurra til sex tíma ferðir með leiðsögumanni

Hugmynd að 4-6 tíma ferðum gæti verið frá veðrará að Valþjófsdal, þvera fjörðinn, skoða klettinn við Klofning og róa svo með norðurströndinni til Flateyrar.

Einnig er skemmtilegt að róa frá Flateyri út með ströndinni og enda á Suðureyri þar sem hægt er að fara í sund.

 

Annar möguleiki er að róa frá Flateyri út á Ingjaldssand, róa svo til baka með vesturströndinni að Valþjófsdal og síðan yfir á Oddatá og enda á Flateyri.


Grænhöfði ehf,
 Ólafstúni 7,  425 Flateyri,  e mail:  kajak@simnet.is


Símar: + 354 456 7762, + 354 863 7662, + 354 861 8976


Heim
Kajak
Gisting
Tobba
Um okkur
Deutsch
Mynda albúm